Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar


Forsíða
Starfsfólk
Hvar erum við
Minnisblað kaupenda
Gagnleg skjöl
Söluskrá
Fasteignir á Florida

Minnisblað kaupenda

Það er þrennt sem skiptir mestu máli þegar verið er að leita að íbúðarhúsnæði til kaups.

1) Fjármálin.
Fyrir kaupendur fasteigna er mikilvægt að byrja á að fara í greiðslumat, eða að minnsta kosti bráðabirgðagreiðslumat og gera sér grein fyrir því hversu dýra eign hægt er að kaupa. Allar upplýsingar um greiðslumat er að finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs (ils.is). Þar er hægt að fara í “bráðabirgðagreiðslumat”. Bankar og sparisjóðir annast greiðslumat fyrir viðskiptavini sína. Greiðslumat er fagleg úttekt hlutlauss aðila (banka eða sparisjóðs) á fjármálum einstaklinga. Þurfi viðkomandi einnig að selja íbúð er mikilvægt að fá glögga hugmynd um verðmæti hennar. Slíkt sölumat gerum við hjá FBJ án endurgjalds.

2) Að skilgreina þarfir sínar.
Næst er að skilgreina þarfir sínar og taka afstöðu til eftirfarandi og jafnvel fleiri atriða:
- Hvar vil ég vera (hvaða póstnúmer)? - Hversu stóra eign þarf ég (hversu mörg svefnherbergi og hversu margir fermetrar)? Hvað vil ég kaupa dýra eign? Sérbýli? Fjölbýli? Bílskúr? Lyfta? Húsvörður? Útsýni? Og jafnvel fleira.
- Það er mjög mikilvægt og sparar mikinn tíma að gera sér glögga grein fyrir því hvers konar eign leitað er að. Því betur sem fólki tekst að skilgreina þarfir sínar því einfaldari er leitin.

3) Að leita að fasteign.
Þegar búið er að taka afstöðu til fjármálanna og skilgreina þarfir sínar vel þá ráðleggjum við fólki að nota stæsta hluta tímans til að fylgjast með á fasteignavef Morgunblaðsins (mbl.is / fasteignir). Þar er á nútímalegan hátt hægt að fylgjast með öllum fasteignasölum á einum og sama stað. Áríðandi er að kynna sér fyrst hvernig vefurinn virkar og vinnur. Við bendum fólki á að notfæra sér “draumaeignina” á fasteignavef Morgunblaðsins. Fasteignavefur Morgunblaðsins er í dag öflugasti miðillinn við sölu fasteigna, alveg sérstaklega við sölu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Ef leitin gengur gengur illa þá kann að vera ástæða til að huga að því hvort þau markmið sem verið er að setja sér með leitinni séu erfið eða jafnvel óraunhæf. Þá er gott að gera sér grein fyrir því að eignir á eftirsóttum stöðum hafa þann eiginleka að stoppa stutt við á markaðnum. Þær seljast fljótt. Því er jafnan lítið til af þeim á söluskrá. Þrátt fyrir það getur verið töluverð hreyfing á þeim.

Við leit að fasteign er rétt að hafa í huga að skipta má eiginleikum fasteigna í tvennt, annarsvegar þá eigileika sem ekki verður breytt og hinsvegar þá eiginleika sem hægt er að breyta. Hinir óbreytanlegu eiginleikar svo sem staðsetning, stærð, hæð í húsi, útsýni o.s.frv. verða að hafa forgang. – Því fáum við ekki breytt.- Hitt það sem hægt er að breyta svo sem gólfefni, málning innréttingar og fleira verður að vera víkjandi, og því breytum við, ef það hentar okkur ekki.

© 2010 Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, fbj@fbj.is